Eflum dreifbýlið og öryggi í samgöngum
Frá því ég man eftir mér hef ég haft mikinn áhuga á landbúnaði og tók virkan þátt í búskapnum með foreldrum mínum eftir því sem ég hafði getu og mér var treyst til þess. Árið 2005 tók ég við kúabúinu af foreldrum mínum og hef staðið í þeim rekstri síðastliðin 20 ár. Á þessum tíma hef ég verið virkur í félagsmálum m.a. í kringum íþróttafélög, rekstur kornræktarfélags, verið fulltrúi fyrir kúabændur, setið í stjórn afurðastöðvar og tekið þátt í norrænu samstarfi í nautgriparækt.
Náttúran, öryggið og fólkið
Öryggismál og öryggisinnviðir eru mér afar hugleikin og hef ég verið varamaður í Almannavarnanefnd sveitarfélagsins fyrir hönd Kex á síðasta kjörtímabili. Kex hefur unnið ötullega að því að fá mannað bráðaviðbragð í Öræfin í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og mun nýtt fyrirkomulag líta dagsins ljós á næstu vikum. Þar að auki er það mér sérstaklega mikilvægt að styrkja öryggisinnviði sveitarfélagsins enn frekar, m.a. með björgunarmiðstöð í Öræfum eða fjölnota húsi. Þar sem ég hef starfað mikið með Björgunarsveitinni Kára hér í Öræfum finnst mér brýnt að efla viðveru og aðstöði annarra viðbragðs á svæðinu.
Suðupottur menningar og fjölbreytileika
Eitt stærsta úrlausnarefni næstu fjögurra ára er viðvarandi skortur í sveitarfélaginu á leiguhúsnæði. Ég þekki það af eigin reynslu hversu erfitt það getur reynst fólki að setjast hér að til lengri tíma. Hvort sem það eru brottfluttir sem vilja flytja aftur heim, nýjir íbúar sem sjá tækifæri í því að flytjast í sveitarfélagið eða farandverkafólk sem hefur búið í sveitarfélaginu í styttri tíma en hefur áttað sig á því, sem við sem búum hér þekkjum svo vel, að hvergi er betra að vera.
Fyrir jöfnuð og betri lífsgæði
Á yfirstandandi kjörtímabili hef ég setið í stjórn hafnarinnar og er hreykinn af því hve vel okkur í hafnarstjórn hefur gengið að ýta á eftir vinnu við rannsóknir og undirbúning varanlegra endurbóta á innsiglingunni um Hornafjarðarós með varnargörðum og að tryggja fjármagn til mikilvægrar dýpkunar Grynnslanna næstu árin, enda er mikilvægi hafnarinnar augljóst öllum íbúum sveitarfélagsins.
Gott samfélag
Ég tók þátt í Þriðja framboðinu og þegar það bauð ekki fram gekk ég til liðs við Kex. Ég er formaður atvinnu- og menningarmálanefndar, einnig er ég varamaður í tveimur nefndum: fræðslu- og frístundanefnd, og heilbrigðis- og velferðarnefnd. Nefndarstörfin eru skemmtileg og í öllu starfinu sem ég hef komið að fyrir sveitarfélagið hef ég upplifað jákvæðni og gott samstarf: hver sem flokkurinn er þá erum við öll að gera okkar besta og viljum samfélaginu vel.
Öflugir innviðir með framtíðina að leiðarljósi
Þegar við stofnuðum Kex var það meðal annars vegna þess að það var glatað að sitja og tuða yfir því sem betur mætti fara og þannig fór þessi bolti af stað - og hér erum við enn. Nú með fjögur ár af reynslu í bæjarpólitík og eigum fullt inni. Það sem hefur komið mér mest á óvart í þessu er hvað stjórnsýslan er tímafrek og verkefni innan hennar geta tekið langan tíma. Þó hefur okkur tekist að knýja áfram ýmis mál sem við vildum að betur yrði gert.
Öflug hagsmunagæsla skiptir máli
Eitt af fjölmörgum verkefnum sveitarstjórnafólks er að gæta hagsmuna sveitarfélagsins og vera málsvari þeirra gagnvart ríkinu og öðrum hagsmunaaðilum.
Á þessu kjörtímabili höfum við lagt mikla áherslu á það að koma sjónarmiðum sveitarfélagsins á framfæri og gæta hagmuna okkar.
Þessi hagsmunagæsla er ekki alltaf mjög sýnileg, en hún birtist hinsvegar í þeim árangri sem við höfum náð á kjörtímabilinu.
Engar skyndilausnir, ábyrgð og skýr stefna.
Það getur verið mikil áskorun að koma ný inná svið stjórnmála með litla sem enga reynslu en það hefur að mínu mati tekist vel til og samstarf milli allra flokka verið gott. Okkur í Kex fannst mikilvægt fyrir fjórum árum að ná sveitarfélaginu úr því neikvæða umtali sem var orðið mikið og var farið að taka á íbúa.
Hvaða samfélagsanda og samfélag viljum við hafa?
Mér finnst skipta máli að það sé jafn mikilvægt viðhorf innan stjórnsýslunnar að einstaklingar, lítil fyrirtæki og meðalstór hafi möguleika á að vaxa og hafa fyrirsjáanleika til reksturs.
Krafturinn í náttúru og fólki
Eitt af því sem mér finnst skipta máli er að taka þátt í því samfélagi sem ég bý hverju sinni, þá bæði leggur maður sitt af mörkum inní hópinn en ekki síður er þar tækifæri til að kynnast samferðafólkinu.
Krafturinn í fjölbreytileikanum
Ég heiti Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir en er betur þekkt sem Sigga. Ég lít á mig sem Hornfirðing þótt ég hafi ekki verið svo heppin að fæðast hér. Ellefu ára gömul flutti ég hingað með fjölskyldunni minni og þá var ekki aftur snúið.
Sterkt samfélag fyrir börn og fjölskyldur
Ég heiti Kristján Ebenezersson og bý í Hornafirði ásamt eiginkonu minni, Sigurborgu Jónu Björnsdóttur, og þremur börnum okkar. Ég starfa sem framhaldsskólakennari, auk þess sem ég þjálfa körfubolta og starfa sem slökkviliðsmaður. Í gegnum störf mín hef ég kynnst samfélaginu okkar vel og haft tækifæri til að vinna með fólki á öllum aldri.
Samfélagið sem mótaði mig
Wiktoria Anna Darnowska heiti ég og verð 26 ára á þessu ári. Ég er fædd í Póllandi en flutti til Íslands með fjölskyldu minni árið 2011. Hornafjörður hefur því mótað mig sem manneskju, hér ólst ég upp og lauk bæði grunnskóla og framhaldsskóla. Samfélagið okkar hefur gefið mér tækifæri til að vaxa, læra og taka þátt og því langar mig nú að leggja mitt af mörkum til þess að styrkja það enn frekar.
Viltu hafa áhrif?
Fjögur ár eru liðin frá því Kex framboð var stofnað og nú er komið að því að bjóða aftur fram.
Fjögur ár af uppbyggingu - næstu skref Kex Framboðs
Kjörtímabilið hefur gengið vel og samstarf við hina flokkana sem og starfsfólk sveitarfélagsins hefur verið farsælt. Það hefur margt áunnist á síðustu 3 ½ ári og erum við ánægð með þau verkefni sem við höfum náð að koma á laggirnar þó að auðvitað sé það þannig að maður nái aldrei að gera allt.
Nýtt íþróttahús á Höfn - hugsum til framtíðar
Nú hefur endanlega verið tekin ákvörðun um að hefja byggingu nýs íþróttahúss á gamla malarvellinum við Víkurbraut eins og gert er ráð fyrir í núverandi skipulagi.
Upp, upp og áfram!
Upp á síðkastið hefur uppbygging íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu verið til umræðu og undirbúningsvinnan sömuleiðis.
Fjórða tunnan
Í ljósi umræðu um fasteignagjöld, sorpgjöld og fyrirkomulag sorphirðu langar okkur að upplýsa meira um viðfangsefnið.
Hækkun á fasteignagjöldum: hvað þýðir það?
Nú um mánaðarmótin voru innheimt fasteignagjöld í fyrsta sinn á þessu ári. Ýmsar breytingar hafa orðið síðan í fyrra og því viljum við útskýra þær hér.
Aðalskipulag og framtíðarsýnin
Vegna greinar Ara Jónssonar sem birtist í Eystrahorni þann 24. nóvember 2022.

