Kraftur í fólki, menningu og atvinnulífi

Sigrún Sigurgeirsdóttir, formaður atvinnu- og menningarmálanefndar og Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir aðalmaður í atvinnu- og menningarmálanefnd.

Það er gaman að starfa í atvinnu- og menningarmálanefnd í Sveitarfélaginu Hornafirði, en þar sátum við undirritaðar báðar fyrir hönd Kex framboðs, á þessu kjörtímabili. Atvinnulífið er öflugt og í sveitarfélaginu okkar berum við gæfu til að hafa mörg fyrirtæki sem starfa á fjölbreyttum sviðum. Árstíðasveiflur valda því þó að atvinnuleysi eykst á ákveðnum tímabilum. Fiskigengd er ólík milli árstíða og í gegnum tíðina þekkja íbúar hér áhrif þess á fiskveiðar og vinnslu. Margfalt fleiri ferðamenn koma til okkar á sumrin en veturna og þar er veðrið áhrifaþáttur sem erfitt er að ráða við. Þar hefur þó orðið mikil breyting á síðustu árum, síðan 2011 þegar ráðist var í verkefnið Ísland allt árið, þar sem áhersla var lögð á það að laða fólk til landsins á þeim árstímum sem áður höfðu verið rólegir.

Menningarlífið blómstrar í Sveitarfélaginu Hornafirði og áhugaverðir viðburðir fara fram í öllum sveitunum og á Höfn. Menningarmiðstöð Hornafjarðar heldur úti öflugu starfi, m.a. í Svavarssafni, Bókasafninu og Skjalasafninu og nú hefur verið tekin sú stefna að gera Gömlubúð hátt undir höfði. Nokkrir starfsmanna MMH hafa vinnuaðstöðu sína þar og með því móti er auðveldara að manna opnun og veita þjónustu til heimamanna og gesta. Hornfirskir tónlistarmenn hafa lagt sitt af mörkum til að glæða húsið lífi og við þökkum þeim fjölmörgu sem hafa tekið þátt í því. Nú er unnið að sýningu á völdum munum Byggðasafnsins og sýningarstjórarnir Hanna Dís og Birna hafa valið þá skemmtilegu leið að gefa fólki kost á að taka þátt í að velja munina sem verða sýndir.

Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í menningarstarfi hafa ýmsa valkosti, eins og kom glögglega í ljós þann 13. september síðastliðinn þegar Nýheimar Þekkingarsetur stóð fyrir viðburðinum Frístund. Þar kom fram að í sveitarfélaginu starfa samanlagt tæplega 80 félagasamtök og klúbbar og 33 þeirra voru með kynningu á starfinu sínu á viðburðinum.

Sveitarfélagið veitir styrki sem styðja bæði við menningu og atvinnulíf. Um er að ræða verkefna- og rekstrarstyrki sem fjölmörg félög og einstaklingar nýta sér, en einnig Atvinnu- og rannsóknasjóð sem hefur það hlutverk að hvetja til nýsköpunar, þróunar og rannsóknarstarfs í sveitarfélaginu. Þessir styrkir skipta sköpum fyrir framgang hugmynda og verkefna og stuðla að fjölbreyttara og öflugra samfélagi. Við teljum mikilvægt að efla sérstaklega Atvinnu- og rannsóknasjóð á komandi kjörtímabili til að styðja við nýsköpun, skapa fleiri tækifæri og styrkja atvinnulífið til framtíðar. Á hinni árlegu menningarhátíð sveitarfélagsins eru  afhentir styrkir og tilkynnt hver hefur hlotið menningarverðlaun. Þar kemur glögglega í ljós hve mikill kraftur og frumkvæði er í samfélaginu. Útdeiling styrkjanna og menningarverðlauna eru á  meðal skemmtilegri verkefna nefndarinnar.  

Að lokum langar okkur að minna á mikilvægi þess að mæta á viðburði: fólkið í salnum gefur orku til þeirra sem fyrir þeim standa og þeirra sem koma þar fram. Góð mæting eykur einnig líkur á því að fleiri viðburðir verði í boði. Við hlökkum til að sjá áfram þann kraft, sköpunargleði og samhug sem einkennir samfélagið okkar halda áfram að blómstra á komandi árum.

Setjum X við K 16. maí

Next
Next

Tökum einföld skref sem vega fyrir marga