Krafturinn í náttúru og fólki
Helga Árnadóttir skipar 11. sæti á lista Kex Framboðs
Ég heiti Helga Árnadóttir og verð 47 ára á þessu ári. Ég er gift Stefáni Viðari Sigtryggssyni, jöklaleiðsögumanni og við eigum tvo unglingsstráka. Við höfum búið í góðu yfirlæti á Höfn undafarin 13 ár. Ég á rætur á Rangárvellina en hef einnig búið í Reykjavík og í Kelduhverfi.
Ég er með BS próf í líffræði frá Háskóla Íslands og meistarpróf í heilbrigðsivísindum frá sama skóla. Áhugi og sterk náttúrutengsl leiddu mig út í landvarðastarfið fyrir næstum tuttugu árum og hef núna varið meirihluta starfsferlisins hjá Vatnajökulsþjóðgarði og frá upphafi árs 2025 hjá Náttúruverndarstofnun. Starfið mitt leiddi mig til Hafnar og ætli það megi ekki segja að jöklarnir og mögnuð náttúruöflin hér hleypi mér seint úr fangi sínu!
Ég hef sinnt ólíkum verkefnum og unnið á fjölbreyttum svæðum í störfum mínum. Einnig hef ég sótt hin ýmsu námskeið tengd mannauðsmálum, miðlun, verkefnastjórnun, stefnumótun og
Útivist og áhersla á heilsueflandi lífstíll er fastur hluti í tilverunni. Ég hleyp, hjóla og synd, geng á fjöll og fer á skíði. Ég hef lokið grunnámi í fjallamennsku og 2. stigi þjálfaramennuntar hjá ÍSÍ og hef
Eitt af því sem mér finnst skipta máli er að taka þátt í því samfélagi sem ég bý hverju sinni, þá bæði leggur maður sitt af mörkum inní hópinn en ekki síður er þar tækifæri til að kynnast samferðafólkinu. Ég hef m.a. lagt mig fram um að vera virk í foreldarstarfi strákanna minna, hef setið í skólaráði og verið virkur tengill í íþróttastarfi þeirra. Ég hef í tæp 5 ár haldið utan um Hlaupahóp Hornafjarðar þar sem við í hópnum höfum m.a. staðið fyrir ýmsum viðburðum tengdum hlaupum og með því vonandi lagt fram okkar (hlaupa)skref til heilsueflandi samfélags!. Fyrir 4 árum gekk ég til liðs við Kex framboð einmitt með það í huga að vilja leggja mitt af mörkum fyrir samfélagið og mér finnst mikilvægt að fjölbreytt sjónarmið fái að heyrast. Ég hef undanfarið kjörtímabil setið í umhverfis- og skipulagsnefnd. Það hefur verið mjög lærdómsríkur tími og má þar sérstaklega nefna það umfangsmikla verkefni að móta nýtt aðalskipulag fyrir sveitarfélagið. Í ljósi reynslu minnar og áhuga þá legg ég einna helst áherslu á náttúruvernd og umhverfis- og skipulagsmál. Sveitarfélagið er ríkt af náttúrugæðum og í einstakri stöðu til að skapa sér sérstöðu þar að lútandi. Virkt samtal, gagnsæi, gott aðgengi að upplýsingum og fagleg vinnubrögð skipta þar miklu máli. Ég vil vinna áfram að þessum málaflokki af fagmennsku, í góðri samvinnu og ekki er nú verra ef það er smá gleði í því líka!

