Viltu hafa áhrif?
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir er höfundur greinar
Fjögur ár eru liðin frá því Kex framboð var stofnað og nú er komið að því að bjóða aftur fram. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þessum tíma og dýrmæt þekking og reynsla áunnist hjá okkur sem tókum sæti í bæjarstjórn árið 2022. Við höfum lært af áskorunum, vaxið í hlutverki okkar og hlökkum nú til að taka aftur þátt og leggja áfram okkar af mörkum til samfélagsins af meiri styrk og festu.
Í febrúar stendur Kex fyrir málefnafundum þar sem mótuð verður stefna framboðsins til næstu fjögurra ára. Fyrir fjórum árum vorum við ný og óreynd, en full eldmóðs, og settum okkur metnaðarfull markmið. Við erum stolt af mörgu sem hefur áunnist, en jafnframt meðvituð um að ekki náðist að hrinda öllu í framkvæmd. Það er einfaldlega eðli stjórnmála og samstarfs að ekki er alltaf hægt að gera allt. Við erum þó sannfærð um að fáum við endurnýjað umboð mun margt af því sem áður var sett á stefnuskrá ná fram að ganga.
Nú horfum við fram á veginn og þar þurfum við þína hjálp. Hvað finnst þér vanta í sveitarfélagið? Hvað má betur fara? Hvað er vel gert og hverju á ekki að breyta? Ef þú hefur skoðun þá eru málefnafundir Kex rétti vettvangurinn fyrir þig.
Ég hvet þig til þess að taka af skarið, hafa áhrif og ekki sitja heima hjá þér með vangaveltur sem eiga heima á vettvangi málefnafundar. Það eru allir velkomnir til okkar og vonumst við til þess að sjá víðan og breiðan hóp sem endurspeglar samfélagið okkar sem best.
Málefnafundir Kex
14. febrúar
12:00 - Hofgarður
15:00 - Hrollaugsstaðir
Annar málefnafundur verður haldinn á Höfn síðar í febrúar og verður auglýstur á samfélagsmiðlum Kex.
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
gjaldkeri og bæjarfulltrúi Kex

