Samfélagið sem mótaði mig

Wiktoria Anna Darnowska skipar 6. sætið á lista Kex Framboðs

Wiktoria Anna Darnowska heiti ég og verð 26 ára á þessu ári. Ég er fædd í Póllandi en flutti til Íslands með fjölskyldu minni árið 2011. Hornafjörður hefur því mótað mig sem manneskju, hér ólst ég upp og lauk bæði grunnskóla og framhaldsskóla. Samfélagið okkar hefur gefið mér tækifæri til að vaxa, læra og taka þátt og því langar mig nú að leggja mitt af mörkum til þess að styrkja það enn frekar.

Síðastliðið vor útskrifaðist ég frá Háskólanum á Akureyri með BS-gráðu í iðjuþjálfunarfræði. Auk þess hef ég nýlega lokið diplómanámi í sálrænum áföllum og ofbeldi og setið námskeið til að verða mentor í þjónandi leiðsögn. Frá árinu 2023 hef ég starfað hjá sveitarfélaginu í félagsþjónustu, þar sem ég vinn náið með fólki og fæ daglega innsýn í mikilvægi þess að samfélagið veiti stuðning, tækifæri og rými fyrir alla til að taka virkan þátt.

Velferðarmál standa mér nærri. Í gegnum bæði nám, störf og reynslu hef ég séð hversu mikil áhrif öflug og aðgengileg þjónusta getur haft á líf fólks. Sterkt velferðarkerfi er ein af grunnstoðum góðs samfélags, þar sem einstaklingar og fjölskyldur fá þann stuðning sem þau þurfa til að takast á við áskoranir og byggja upp gott líf. Sveitarfélagið okkar hefur að mörgu leyti staðið sig vel í þessum málaflokki og það er mikilvægt að halda áfram að byggja á þeim góða grunni sem þegar hefur verið lagður á sama tíma og þjónustan þróast í takt við breyttar þarfir samfélagsins.

Menningarmál skipta mig einnig miklu máli. Sem einstaklingur sem er fæddur erlendis en hefur alist upp á Hornafirði þekki ég vel mikilvægi þess að samfélag sé opið og að fólk finni að það eigi heima í samfélaginu. Öflugt menningar og samfélagslíf styrkir tengsl milli íbúa, eykur samfélagsanda og skapar vettvang þar sem fjölbreytileiki og ólík reynsla verða að styrk fyrir samfélagið í heild. Slík samfélög eru ekki aðeins sterkari heldur einnig meira aðlaðandi fyrir fólk til að búa og starfa í. Ég hef einnig tekið virkan þátt í samfélagslífinu með því að sitja í humarhátíðarnefnd árin 2023 og 2024, þar sem ég kom að skipulagningu hátíðarinnar ásamt öðrum íbúum. Sú reynsla hefur sýnt mér hversu mikilvægt er að fólk taki þátt í að byggja upp lifandi og öflugt samfélag.

Sterkt samfélag byggist á þátttöku, samvinnu og traustum grunni. Ég vil leggja mitt af mörkum og taka þátt í samfélaginu, efla það og tryggja að Sveitarfélagið Hornafjörður verði áfram góður staður til að búa og starfa.

Kær kveðja, Wiktoria Anna

Áfram Kex!

Next
Next

Viltu hafa áhrif?