Hvað þarf til að reka gott sveitarfélag?
Eyrún Fríða Árnadóttir, oddviti Kex Framboðs
Ég heiti Eyrún Fríða Árnadóttir og er svo lánsöm að leiða lista Kex framboðs fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí næstkomandi.
Nú í sumar eru fimm ár síðan ég fluttist á Höfn þar sem ég bý með dætrum mínum tveimur sem verða 7 og 9 ára núna í ár. Sjálf er ég sannfærð um að enginn staður sé betri til þess að búa á, hvað þá að ala upp börn. Hér eru börnin okkar bæði frjáls og örugg, alast upp í sátt við náttúruna, njóta öflugra innviða og þjónustu en fyrst og fremst er það fólkið sem skapar þetta dásamlega samfélag.
Á síðustu fjórum árum hef ég verið formaður bæjarráðs og fengið innsýn inn í hversu ótrúlega margir þættir skipta máli til þess að halda samfélaginu okkar gangandi. Við erum eins fjölbreytt og við erum mörg og því er nauðsynlegt að horfa á þarfir ólíkra hópa. Hér búa einstakingar við mismunandi aðstæður, með fjölbreyttan uppruna, á öllum æviskeiðum með ólík áhugamál. Að mínu mati er það því ekkert einfalt mál að tryggja að hér líði öllum vel.
En það er hægt að gera þetta vel.
Kex framboð leggur áherslu á að halda áfram að byggja upp stöðugan og traustan rekstur sveitarfélagsins. Til þess þarf þjónusta að vera áreiðanleg, sýna þarf ábyrgð í uppbyggingu og hafa skýra framtíðarsýn, bæði fyrir íbúa og atvinnulíf. Á síðustu árum höfum við unnið markvisst að því að auka fyrirsjáanleika og gagnsæi í áætlunum okkar, meðal annars með framtíðarsýn í uppbyggingu skóla- og íþróttamannvirkja, leikskólamálum og málefnum eldri borgara. Framundan er sambærileg vinna í málefnum fatlaðs fólks.
Að reka sveitarfélag fylgir gríðarleg ábyrgð og þá sérstaklega þegar kemur að því að ráðstafa fjármunum almennings. Oft mætast ólík sjónarmið, að lækka álögur og hagræða annars vegar, og að byggja upp til framtíðar hins vegar. Reynslan hefur kennt okkur að skammtímalausnir geta reynst dýrari til lengri tíma. Þess vegna leggjum við áherslu á að vanda til verka, greina þörfina til framtíðar og leggja fram áform sem þjónusta þarfir bæði núverandi íbúa og komandi kynslóða.
Vanáætlun í fjárfestingum, hræðsla við að tryggja fullnægjandi mönnun, eða einfaldlega forðun á því að takast á við lögbundin verkefni sveitarfélagsins bitnar að endingu alltaf á íbúum. Niðurstaðan er innviðaskuld byggð á fögrum fyrirheitum en litlum efndum. Við, kjörnir fulltrúar, verðum að standa undir því trausti sem okkur er falið með því að fá að sitja í bæjarstjórn og fara með fjármuni sveitarfélagsins. Þessir fjármunir sem íbúar greiða eiga að standa undir öruggu og stöðugu sveitarfélagi.
Á kjörtímabilinu höfum við lagt okkur fram við að hugsa um samfélagið í heild og gera okkar besta til þess að efla alla þætti þess. Markmiðið hefur verið skýrt, að hér sé einfaldlega best að búa. Með stöðugri og traustri uppbyggingu, áframhaldandi samstöðu og bjartsýni getum við tryggt að svo verði einnig í framtíðinni.
Því óska ég eftir umboði ykkar til þess að halda þeirri vinnu áfram næstu fjögur árin.
Setjum X við K 16. Maí.

