Öflugir innviðir með framtíðina að leiðarljósi

Róslín Alma Valdemarsdóttir skipar 8. sæti á lista Kex Framboðs

Ég heiti Róslín og er 32 ára, gift Rafni og við eigum þrjú börn, Högna, Magneu og Veru. Ég er fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði. Mér finnst stórkostlegt að búa hér með fjölskyldunni minni, stutt í allt og get því notið tímans meira með mínum. Ég hef mest allt mitt líf búið hér, fyrir utan þrjú ár í Reykjavík þar sem ég lærði margmiðlunarfræði við Margmiðlunarskólann sem heitir í dag Stafræn hönnun hjá Tækniskólanum. Ég kláraði ár í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og hyggst á áframhaldandi námi í náinni framtíð.

Ég starfa sem verkefnastjóri hjá Fræðsluneti Suðurlands og held þar utan um íslenskunám á Suðurlandi. Ég sat sem formaður fræðslu- og frístundanefndar fyrir hönd Kex í þrjú og hálft ár á þessu kjörtímabili og lærði heilmargt af því. Einnig sat ég góðan part kjörtímabilsins í fræðslumálanefnd Sambands Íslenskra Sveitarfélaga.

Þegar við stofnuðum Kex var það meðal annars vegna þess að það var glatað að sitja og tuða yfir því sem betur mætti fara og þannig fór þessi bolti af stað - og hér erum við enn. Nú með fjögur ár af reynslu í bæjarpólitík og eigum fullt inni. Það sem hefur komið mér mest á óvart í þessu er hvað stjórnsýslan er tímafrek og verkefni innan hennar geta tekið langan tíma. Þó hefur okkur tekist að knýja áfram ýmis mál sem við vildum að betur yrði gert.

Tómstundir og menning er það sem ég brenn fyrir, sveitarfélagið okkar er stútfullt af frábæru fólki á öllum sviðum. Við eigum helling af framúrskarandi ungu íþróttafólki og þurfum við að halda áfram að standa vörð um þau störf sem íþróttafélögin okkar standa fyrir. 

Á líðandi kjörtímabili fórum við í framkvæmdir á Sindrabæ, húsnæði Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu, en Kex setti á stefnuskrá árið 2022 að farið yrði í nauðsynlega uppbyggingu og viðhald. Endurbæturnar höfðu þá dregist frá árinu 2008, kosningaloforð 2010 lofuðu nýjum tónskóla. Á árunum eftir 2010 var ráðist í ýmsar viðhalds- og endurbætur, einkum að utan og að hluta til innan, þ.m.t. salernisaðstaða og móttökueldhús. Farið var í útboð árið 2021 þar sem eitt tilboð barst, 37% yfir kostnaðaráætlun og frávik að framkvæmt yrði árið 2022, tilboðið hljóðaði upp á 236.777.541 kr. Því tilboði var hafnað. Haustið 2023 var málið tekið upp á ný og vorið 2024 farið yfir útboðsgögn, eitt tilboð barst, það var 24% yfir kostnaðaráætlun, upphæð 351.848.091 kr. Hækkunin er umtalsverð á þessum þremur árum, sem skýrist að hluta af almennum verðlagshækkunum. Ákveðið var að taka tilboðinu fara í verkefnið og á því að ljúka nú í sumar þegar nýtt hljóðkerfi verður sett upp. Við eigum því orðið þennan glæsilega tónskóla og stórkostlegt menningarhús. Menningin skapar samfélagið og mikilvægt er að innviði sveitarfélagsins séu í lagi. Það borgar sig oft ekki að bíða með að framkvæma hluti, en Sindrabær er gott dæmi um að hlutir verða ekki ódýrari með tímanum og það er ekki til sparnaðar að gera ekki neitt. 

Ég legg áherslu á að nýtt íþróttahús verði byggt á nýju kjörtímabili, en undirbúningsvinnan hefur verið löng og allt samfélagið fengið að koma að vinnunni. Hér er mikilvægt að skoða alla þætti en vinnan hefur tekið of langan tíma og viljum við ekki hætta henni. Þetta þarf alls ekki að vera flókin framkvæmd, en þegar farið er af stað í eins stóra framkvæmd sem hugsuð er til margra áratuga þarf samt sem áður að vanda til verka og eiga gott og opið samtal við hagsmunaaðila. Þá vil ég að samgöngur gangandi vegfarenda verði endurskoðuð og gangstéttar og gangbrautir lagaðar svo þær séu aðgengilegar öllum. Þetta er verkefni sem hefur setið alltof lengi á hakanum og viljum við í Kex vinna gagngert í að mótuð verði aðgerðaáætlun í endurbótum á gangstéttum svo að íbúarnir okkar, börnin og gestir séu örugg.

Höldum áfram að efla innviði, byggja og tala upp sveitarfélagið okkar, vegna þess að það styrkir okkur öll sem heild.

X við Kex 2026!

Next
Next

Öflug hagsmunagæsla skiptir máli