Hvaða samfélagsanda og samfélag viljum við hafa?
Sveinbjörg Jónsdóttir skipar 10. sætið á lista Kex Framboðs
Ég heiti Sveinbjörg Jónsdóttir ég er 61 árs gömul fædd og uppalin á Hornafirði. Ég er nuddmeistari, með BA gráðu í Guðfræði og djáknakandídat að mennt. Eiginmaður minn er Ómar Frans Fransson og eigum við tvær dætur og fimm barnabörn. Undanfarin 27 ár hef ég starfað sem nuddari og frá 2014 hef ég leitt 12 spora starf „vinir í bata” í Hafnarkirkju.
Samtalið
Þar sem ég hef lengi verið hér á vegi tel ég mig hafa ágæta innsýn í samfélagið. Ég hef átt mörg samtölin út í bæ þar sem fólk hefur ekki verið sátt vegna eðli samskipta eða samskiptaleysis.
Undanfarin fjögur ár hef ég starfað með stjórnmálaaflinu Kex og lært mikið. Í starfi mínu með Kex hef ég fengið innsýn í það hvað felur í sér að vinna með hagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi og hvað heyrir þar undir.
Þarna þykir mér samtal og samskipti skipta höfuðmáli. Það er gríðarlega mikilvægt að samtalið fari fram á jafningja grundvelli og af virðingu. Undir sveitarfélag heyra margir stórir vinnustaðir og finnst mér skipta miklu máli að góð og heilbrigð vinnustaðamenning sé byggð upp. Sé það gert þá laðar það að sér fólk sem líður vel og vill standa sig vel.
Upplýsingaflæði
Á núverandi kjörtímabili hef ég lagt mig fram við að koma ábendingum á framfæri og spyrja um það sem fólki í samfélaginu hefur langað að fá upplýsingar um. En auðvitað innan þess ramma sem lög og reglur leyfa. Ég hef einnig lagt mig fram við að tengja skoðanir, upplifanir og ábendingar fólks beint inn í samtalið og umræðuna.
Atvinnumál
Við búum í stóru landi með stór fiskimið. Við erum fámenn og enn sem komið er nokkuð dreifð um landið. Því miður hafa lög og reglur að miklu leyti einskorðast við að veita framgang stærri og stærri fyrirtækja sem færri og færri koma að. Mér er umhugað um að lög, reglur og samskipti séu af alvöru, einnig til framgangs fjölbreytni í atvinnulífinu. Mér finnst skipta máli að það sé jafn mikilvægt viðhorf innan stjórnsýslunnar að einstaklingar, lítil fyrirtæki og meðalstór hafi möguleika á að vaxa og hafa fyrirsjáanleika til reksturs. Þar skiptir einnig miklu máli að talsmenn innan sveitarfélags leggi áherslu á rétt þeirra sem búa í samfélaginu og hafa byggt upp gistingu, afþreyingu og annan sambærilegan rekstur.
Náttúran
Svo er það umhverfið okkar en hversu heilandi er að skella sér í göngutúr hér í sýslunni okkar? Blómin, birkið, mosinn, ilmurinn, tært vatnið og dýralífið. Það er gríðarlega mikilvægt að skila náttúrunni í sem bestu ásigkomulagi til komandi kynslóða. Í röðum Kex er fólk sem lætur sig þessi mál miklu varða.
Að lokum vil ég þakka allt samstarf á þessu kosninga tímabili sem mér fannst einkennast af því að hafa verið farsælt og glatt og af mörgum einstaklingum sem unnið hafa góða vinnu í þágu allra.
Með von um x við Kex

