Best að eldast í Hornafirði

Eyrún Fríða Árnadóttir, 1. sæti Kex Framboðs

Þegar Kex framboð bauð fram í fyrsta sinn voru málefni eldri borgara ekki sá málaflokkur sem lögð var mest áhersla á. Margt vatn hefur þó runnið til sjávar og á þessum fjórum árum hefur áhersla okkar á málaflokkinn aukist mikið. Mikið hefur áunnist á kjörtímabilinu og því er ekki síst að þakka góðu og öflugu samtali, bæði við öldungaráð og Félag eldri Hornfirðinga. 

Á kjörtímabilinu endurnýjaði sveitarfélagið samning við Félag eldri Hornfirðinga um rekstur félagsstarfs fyrir eldri borgara. Á sama tíma höfum við aukið fjármagn til starfseminnar og unnið að metnaðarfullri framtíðarsýn fyrir málaflokkinn. Einnig var lagt í mikla vinnu í hönnun vegna endurbóta á jarðhæð í Ekru. Nú standa yfir framkvæmdir á fyrsta áfanga í þeim endurbótum. Við ætlum að halda áfram með þær endurbætur og erum að vinna að því að greina framtíðar uppbyggingu við Ekruna. 

Á undanförnum kjörtímabilum hafa tækifæri glatast til uppbyggingar í kringum Ekruna, Skjólgarð og HSU. Skortur hefur verið á heildarsýn og stefnu í málaflokknum og ekki nægilega mikið tekið tillit  til þess að um er að ræða einn mest ört vaxandi aldurshóp á landsvísu. Hópur með fjölbreyttar þjónustuþarfir sem mikilvægt er að mæta, hvort sem það er af hálfu ríkisins eða sveitarfélagsins. 

Það er því mikilvægt að vanda vel til verka og gæta að því að hægt verði að byggja upp íbúðir og úrræði fyrir aldraða annað hvort við eða í kringum Ekruna. Við eigum að stefna að því að byggja upp öflugan velferðarkjarna í Ekrunni þar sem aldraðir geta komist í húsnæði við hæfi og haft aðgengi að þjónustu sem stuðlar að því að það geti búið sem lengst heima. Hér þarf að huga jafnt að almennum eignaríbúðum, leiguíbúðum, öryggis- og jafnvel þjónustuíbúðum. Mikilvægt er að félagsstarf Félags eldri Hornfirðinga og dagþjónustan þróist í takt við aukna eftirspurn, þannig að unnt sé að bjóða upp á öfluga félagslega þjónustu og heimahjúkrun innan velferðarkjarnans.

Á næsta kjörtímabili ætlar Kex að:

  • Hefja undirbúning varðandi framtíðaruppbyggingu við Ekru.

  • Halda áfram með fyrirhugaðar endurbætur á félagsaðstöðu í Ekru.

  • Styðja og efla heilsueflingu eldri borgara í þéttbýli og dreifbýli.

  • Fara í þarfagreiningu á sérhæfðum búsetuúrræðum fyrir aldraða, t.d. öryggis- og/eða þjónustuíbúðir.

Kex býður sig fram til að halda málefnum aldraðra á lofti og gera Sveitarfélagið Hornafjörð besta sveitarfélagið til að eldast í.

Setjum X við K 16. mai

Greinin birtist upphaflega í Eystrahorni

Next
Next

Opið bréf til Öræfinga