Gott samfélag
Sigrún Sigurgeirsdóttir skipar 5. sæti á lista Kex Framboðs
Ég heiti Sigrún Sigurgeirsdóttir og bý á Fagurhólsmýri í Öræfum. Ég á langa sögu í Öræfum: get í góðu tómi rakið ættir mínar aftur til Þorgerðar landnámskonu, en sem betur fer hafa komið makar úr ýmsum áttum inn í ættina í gegnum tíðina. Ég hef líka víkkað sjóndeildarhringinn með dvöl á öðrum stöðum: sem unglingur var ég í heimavistarskóla í Nesjum, fór til Reykjavíkur 16 ára og í varð stúdent úr Verslunarskóla Íslands að fjórum árum liðnum, en kom iðulega heim í skólafríum og á sumrin vann ég í Kaupfélaginu á Fagurhólsmýri. Eftir stúdentsprófið flutti ég alfarið í bæinn og stundaði þar vinnu næstu árin, og lauk BA prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands. Seinna flutti ég aftur í Öræfin með sambýlismanni og tveimur börnum, nú eru þau vaxin úr grasi og makinn orðinn fyrrverandi. Mitt aðalstarf er hjá Náttúruverndarstofnun, ég er sérfræðingur hjá Vatnajökulsþjóðgarði og er með starfsstöð í Skaftafelli. Ég hef tekið að mér ýmis verkefni í gegnum tíðina og nú er ég stefnuvottur, en einnig sinni ég félagsmálum af ýmsu tagi. Ég er til dæmis formaður Ungmennafélags Öræfa UMFÖ, er í Björgunarsveitinni Kára og er hluti af vettvangsliðahópnum þar, sit í stjórn Hornafjarðardeildar Rauða Krossins, er í ferðanefnd Ferðafélags Austur-Skaftfellinga, er meðhjálpari í Hofskirkju og formaður sóknarnefndar Hofssóknar í Öræfum.
Ég hef áhuga á félagsmálum og vil að innviðir séu sterkir: gott skólakerfi, öflug atvinnustarfsemi, fjörugt menningarlíf og að samfélagið blómstri, bæði í Öræfum og sveitarfélaginu öllu – en reyndar vil ég líka gott samfélag á Íslandi og heiminum öllum. Áhugamálin eru mörg: ég nýt þess að lesa, syngja, prjóna, sauma, skrifa, ganga, taka þátt í samfélagslegum viðburðum og margt fleira mætti nefna.
Ég tók þátt í Þriðja framboðinu og þegar það bauð ekki fram gekk ég til liðs við Kex. Ég er formaður atvinnu- og menningarmálanefndar, einnig er ég varamaður í tveimur nefndum: fræðslu- og frístundanefnd, og heilbrigðis- og velferðarnefnd. Nefndarstörfin eru skemmtileg og í öllu starfinu sem ég hef komið að fyrir sveitarfélagið hef ég upplifað jákvæðni og gott samstarf: hver sem flokkurinn er þá erum við öll að gera okkar besta og viljum samfélaginu vel.
Sveitarfélagið Hornafjörður samanstendur af nokkrum sveitum og einum þéttbýliskjarna. Vegalengdir enda á milli eru langar og því þurfum við öflugt samfélag í hverri sveit og einnig á Höfn. Það þarf að efla innviði í sveitunum og sem dæmi má nefna að í Öræfum er tilfinnanlegur skortur á aðstöðu til heilsueflingar, það væri óskandi að við gætum komið upp húsnæði til íþróttaiðkunar.
Ég mun með ánægju leggja mitt af mörkum til að gera mannlífið betra. Við berum sameiginlega ábyrgð og hver og einn getur lagt sitt af mörkum með því að mæta á viðburði sem eru haldnir og einnig skiptir önnur neysla máli: með því að versla í heimabyggð eftir því sem kostur er aukum við líkur á betri þjónustu hér. Með samstilltu átaki allra flokka og allra íbúa getum við vonandi gert samfélagið okkar enn betra.

