Krafturinn í fjölbreytileikanum
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir skipar 9. sæti á lista Kex Framboðs
Ég heiti Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir en er betur þekkt sem Sigga. Ég lít á mig sem Hornfirðing þótt ég hafi ekki verið svo heppin að fæðast hér. Ellefu ára gömul flutti ég hingað með fjölskyldunni minni og þá var ekki aftur snúið. Hér hef ég fest rætur, stofnað mína eigin fjölskyldu og vil hvergi annars staðar búa. Á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka var ég annar varamaður í bæjarstjórn og var það bæði gefandi og virkilega lærdómsríkt. Í komandi kosningum skipa ég 9. sæti á lista Kex.
Ég bý með konunni minni, Guðrúnu Ósk Gunnarsdóttur, og börnunum okkar þremur: Sverri Þorra, Styrmi Hróa og Þuru Soffíu. Ég starfa sem deildarstjóri á leikskólanum Sjónarhóli og er leikskólakennari að mennt. Núna er ég í fæðingarorlofi og samhliða því er ég háskólanemi og er um þessar mundir að ljúka viðbótarnámi í stjórnun menntastofnana við Háskóla Íslands.
Mér þykir afar vænt um samfélagið okkar hér á Hornafirði og tel það mikil forréttindi að búa hér og ala upp börnin okkar umkringd stórbrotinni náttúru, jöklum og fjöllum.
Menning og samfélagsþátttaka skipta mig miklu máli. Ég hef fundið á eigin skinni hversu mikilvægt öflugt menningarlíf er í samfélagi eins og okkar. Ég hef setið í stjórn Leikfélags Hornafjarðar í mörg ár og á yfirstandandi kjörtímabili hef ég verið aðalmaður í Atvinnu- og menningarmálanefnd. Á kjörtímabilinu sem er að ljúka innleiddi sveitarfélagið nýtt og samræmt fyrirkomulag styrkveitinga með það að markmiði að einfalda umsóknarferli og tryggja jafnræði við úthlutun styrkja. Styrktarsjóðir atvinnu- og menningarmálanefndar og fræðslu- og frístundanefndar hafa verið sameinaðir í verkefnastyrki sveitarfélagsins sem styðja við afmörkuð verkefni og viðburði sem hafa sýnileg áhrif á menningarlíf og samfélagið. Slíkir styrkir og menningarverðlaunin eru mikilvægur hvati fyrir fólk til að leggja sitt af mörkum og auðga menningarlíf okkar Hornfirðinga.
Ég er kennari og mamma og málefni barna, ungmenna og fjölskyldna eru mér því sérstaklega hugleikin. Ég tel mikilvægt að börn og ungmenni hafi fjölbreytt tækifæri til afþreyingar og þátttöku og að sveitarfélagið hlúi vel að öflugu tómstunda- og íþróttastarfi þar sem öll börn hafa raunverulegt tækifæri til að taka þátt, óháð aðstæðum eða bakgrunni. Ég var sjálf í ungmennaráði í mörg ár og trúi því að rödd ungs fólks skipti máli. Ungt fólk hefur margt fram að færa og mikilvægt er að hlusta á þeirra sjónarmið þegar við mótum samfélagið til framtíðar. Við megum vera virkilega stolt af ungmennaráðinu okkar. Þau eru með áheyrnarfulltrúa í hverri nefnd og eru dugleg að koma inn á fundi nefnda og stjórna. Þau eru öflugur málsvari fyrir stóran hóp íbúa í samfélaginu okkar, sem annars hafa ekki fengið mikla rödd innan stjórnkerfisins.
Að því sögðu þykir mér líka mjög vænt um eldra fólkið í samfélaginu okkar og þeirri þekkingu og reynslu sem þau búa yfir. Ég vona að ég fái sjálf að eldast hér á Hornafirði og njóta efri áranna í samfélagi þar sem fólk hefur góð tækifæri til afþreyingar, samveru og virkrar þátttöku.
Ég er með sterka réttlætiskennd og trúi því að fjölbreytileiki sé mikilvægur hluti af blómstrandi samfélagi og að mikilvægt sé að hlúa vel að öllum þeim ólíku hópum sem mynda sveitarfélagið okkar. Þegar við kynnumst fólki sem er ólíkt okkur opnast oft ný sjónarhorn og við lærum að sjá heiminn með augum annarra.
Ég vil hugsa til framtíðar og taka góðar og vel ígrundaðar ákvarðanir sem styrkja samfélagið okkar til lengri tíma. Á kjörtímabilinu höfum við hjá Kex lagt sérstaka áherslu á að bæta aðstæður í leikskólamálum. Sett var á laggirnar starfshópur um leikskólamál sem var skipaður fulltrúum frá pólítíkinni, fulltrúum foreldra, fulltrúum starfsmanna og fulltrúum stjórnenda auk sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs. Nýja viðbygging við leikskólann okkar reis einnig á tímabilinu og varð leikskólinn því 8 deilda leikskóli. Á nýju deildunum hefur sérstaklega verið hugað að hljóðvist, stærð rýma og vinnuaðstæðum starfsfólks og barna. Í ferlinu var hlustað á sjónarmið þeirra sem starfa í húsinu á hverjum degi og þekkja þarfir barnanna best. Með þessari uppbyggingu hefur einnig gengið vel að taka inn börn í kringum eins árs aldur sem heldur vonandi áfram ef mönnum leikskólans leyfir.
Það er dýrmætt að búa á stað þar sem manni líður vel og yndislegt að taka þátt í því að halda áfram að byggja upp blómlegt samfélag. Lífið er stutt og við megum ekki gleyma gleðinni í daglegu amstri. Finnum hamingjuna í daglegu lífi, verum þakklát fyrir það sem við höfum og stöndum vörð um það. Sjálf er ég óendanlega þakklát fyrir að fá að búa á Hornafirði umkringd fjölskyldunni minni, vinum og samfélagi sem mér þykir svo vænt um.

