Sterkt samfélag fyrir börn og fjölskyldur

Kristján Ebenezersson skipar 7. sætið á lista Kex Framboðs

Ég heiti Kristján Ebenezersson og bý í Hornafirði ásamt eiginkonu minni, Sigurborgu Jónu Björnsdóttur, og þremur börnum okkar. Ég starfa sem framhaldsskólakennari, auk þess sem ég þjálfa körfubolta og starfa sem slökkviliðsmaður. Í gegnum störf mín hef ég kynnst samfélaginu okkar vel og haft tækifæri til að vinna með fólki á öllum aldri.

Ég hef mikinn áhuga á menntamálum og hef síðustu fjögur ár setið í fræðslu- og frístundanefnd sveitarfélagsins. Á því tímabili tók ég einnig þátt í starfshópi sem skoðaði málefni leikskólans, þar sem lögð var áhersla á að hlusta á sjónarmið starfsfólksins og taka mið af þeirra reynslu.

Menntamál skipta mig miklu máli og ég vil halda áfram að leggja mitt af mörkum til að gera skólana okkar enn betri fyrir börn og ungmenni.

Ég hef líka mikinn áhuga á því hvernig við getum byggt upp samfélagið okkar í gegnum íþróttir og frístundastarf. Í gegnum þjálfun í körfubolta hef ég séð hversu mikilvægt íþróttastarf er fyrir börn og ungmenni. Þar fá þau tækifæri til að þroskast, mynda tengsl og læra að taka þátt í sterku samfélagi.

Ég vil leggja mitt af mörkum til að styrkja samfélagið okkar í Hornafirði, með góðu samtali, samvinnu og skynsömum ákvörðunum.

Next
Next

Samfélagið sem mótaði mig