Opið bréf til Öræfinga
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir og Eyrún Fríða Árnadóttir
Kæru Öræfingar,
Síðustu mánuði hefur skapast mikil umræða um uppbyggingu ferðaþjónustu við rætur Skaftafells. Við viljum ávarpa hana hér af einlægri hreinskilni og virðingu.
Við skiljum að skipulagið hafi vakið áhyggjur og spurningar um umfang, áhrif og framtíðarsýn fyrir svæðið. Slík viðbrögð eru eðlileg þegar breytingarnar snerta nærumhverfi og lífsviðurværi fólks.
Það er líka okkar ábyrgð að viðurkenna að ákvarðanir sem teknar eru við nefndarborðið geta haft raunveruleg áhrif á samfélag og að það þarf að vanda til verka í hverju skrefi.
Hver er okkar aðkoma?
Skipulag vegna Skaftafells III og IV hefur verið í ferli innan stjórnsýslunnar yfir langt tímabil og í gegnum nokkur kjörtímabil með aðkomu margra aðila.
Við höfum tekið þátt í ferlinu á síðari stigum þess og, líkt og aðrir kjörnir fulltrúar, tekið ákvarðanir eftir bestu vitund á grundvelli þeirra gagna og reglna sem lágu fyrir hverju sinni. En það er ekki nóg að vísa í ferlið eitt og sér.
Hvað höfum við lært?
Að breytingar sem virðast litlar „í kerfinu“ geta haft afgerandi áhrif í samfélaginu
Að upplýsingar og gögn þurfa að vera skýr, aðgengileg og sett í samhengi við fyrri ákvarðanir og umsagnir.
Að samtal við íbúa þarf að vera fyrr í skipulagsferlinu, skýrara og opnara
Að uppbygging ferðaþjónustu þarf ávallt að taka mið af innviðum og burðargetu samfélagsins
Við sjáum einnig að mál sem teygja sig yfir mörg kjörtímabil hafa tilhneigingu til að verða óskýrari með tímanum. Það er á okkar ábyrgð að bæta það.
Það sem Kex vill leggja áherslu á næsta kjörtímabili er að:
Bæta upplýsingaflæði og aðgengi að gögnum, þannig að íbúar geti betur fylgst með og haft áhrif
Draga úr óverulegum breytingum á skipulagi – ekki síst þegar þær hafa í raun veruleg áhrif
Gera markvissari þarfagreiningar á innviðum áður en stórar og afgerandi ákvarðanir eru teknar
Efla íbúaráð og samtal við nærsamfélagið, þannig að raddir heimamanna heyrist fyrr og skýrar
Móta skýra stefnu í ferðaþjónustu, þar sem gæði, jafnvægi og sjálfbær þróun eru í forgrunni
Framtíðin skiptir mestu
Við stöndum frammi fyrir mikilvægum spurningum sem við viljum að svarað verði á næsta kjörtímabili: Hvernig viljum við að ferðaþjónustan þróist í Öræfum og sveitarfélaginu öllu? Hvernig tryggjum við að hún styrki samfélagið? Hvernig verðum við framúrskarandi gestgjafar án þess að fórna því sem skiptir okkur mestu máli?
Þetta eru ekki spurningar sem stjórnsýslan getur svarað heldur eru þetta spurningar sem þarf að svara í samtali við ykkur.
Einnig er mikilvægt að nefna að í vinnslu eru hugmyndir frá framkvæmdaaðilum í Skaftafelli III og IV um breytingar á deiliskipulaginu. Markmið þeirra breytinga er m.a. að draga úr sjónrænum áhrifum og breyta ásýnd uppbyggingarinnar, eftir samtöl við íbúa og aðra síðustu vikur.
Jafnframt hafa framkvæmdaaðilar lýst yfir vilja til að leggja sitt af mörkum til nærsamfélagsins í Öræfum og taka virkan þátt í uppbyggingu þess. Við teljum mikilvægt að slíkt samtal eigi sér stað á opnum og skýrum forsendum, þar sem hagsmunir samfélagsins verða ávallt að vera í forgangi.
Að lokum
Við ætlum að læra af þessari reynslu og gera betur. Við viljum vinna með ykkur að skýrari verkferlum, auknu samráði og vandaðri uppbyggingu til framtíðar.
Það er okkar ábyrgð og það er okkar vilji.
Fyrir hönd Kex Framboðs,
Eyrún Fríða Árnadóttir og Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir

