Náttúran, öryggið og fólkið

Hrafnhildur Ævarsdóttir skipar 13. sæti Kex Framboðs

Hrafnhildur Ævarsdóttir skipar 13. sæti á lista Kex Framboðs

Ég heiti Hrafnhildur, yfirleitt kölluð Habba, og er aðflutt í Öræfin. Það eru hrein forréttindi að búa í Skaftafelli og hef ég notið þess að vera með þessa einstöku náttúru í bakgarðinum hjá mér. Þegar ég fékk starf sem sérfræðingur í Skaftafelli ákvað ég að taka af skarið og flytja mig og mitt hafurtask hingað austur, en fyrir það var ég búsett á höfuðborgarsvæðinu. Í dag starfa ég sem þjóðgarðsvörður í Skaftafelli í Vatnajökulsþjóðgarði og umdæmisstjóri á suðausturlandi hjá Náttúruverndarstofnun. 

Starfið hjá þjóðgarðinum er bæði gefandi og krefjandi á sama tíma en ég vissi snemma að ég vildi starfa í þágu náttúrunnar. Ég er menntaður náttúrufræðikennari og líffræðingur frá Háskóla Íslands. Seinna tók ég smá u-beygju og lauk við meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu með áherslu á umhverfisstjórnun og almannavarnir. Þar sem mér tekst síðan ekki að halda mig frá skólum ákvað ég að fara í nám í sjúkraflutningum og útskrifast frá Sjúkraflutningaskólanum núna í vor. 

Öryggismál og öryggisinnviðir eru mér afar hugleikin og hef ég verið varamaður í Almannavarnanefnd sveitarfélagsins fyrir hönd Kex á síðasta kjörtímabili. Kex hefur unnið ötullega að því að fá mannað bráðaviðbragð í Öræfin í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og mun nýtt fyrirkomulag líta dagsins ljós á næstu vikum. Þar að auki er það mér sérstaklega mikilvægt að styrkja öryggisinnviði sveitarfélagsins enn frekar, m.a. með björgunarmiðstöð í Öræfum eða fjölnota húsi. Þar sem ég hef starfað mikið með Björgunarsveitinni Kára hér í Öræfum finnst mér brýnt að efla viðveru og aðstöðu annarskonar viðbragðs á svæðinu.

Ég vil halda áfram að leggja mitt af mörkum fyrir náttúruna og öryggisinnviði sveitarfélagsins á næsta kjörtímabili.

Next
Next

Suðupottur menningar og fjölbreytileika