Fyir jöfnuð og betri lífsgæði
Halldór Tjörvi Einarsson skipar 14. sæti Kex Farmboðs
Ég er fæddur árið 1952 í Reykjavík og uppalinn í Norðurmýrinni. Gekk í Austurbæjarskólann og síðan í Gaggó Aust áður en leiðin lá í MR. Þar kynntist ég ástinni minni, Amalíu Rögnu, og eftir stúdentspróf lauk hún í hjúkrunar- og ég kennaranámi. Árið 1980 datt okkur í hug að prófa að búa úti á landi og ég fékk starf þá um haustið sem kennari í Nesjaskóla, og vorið eftir tók Amalía við starfi forstöðukonu elliheimilisins sem síðar varð Skjólgarður. Amalía varð svo hjúkrunarforstjóri Skjólgarðs og sinnti því starfi um langt árabil. Eftir að hún lét af störfum hjúkrunarforstjóra starfaði hún áfram við hjúkrun uns hún lét af störfum 2019. Ég aftur á móti starfaði sem kennari í Nesjaskóla til 1987 og eftir það í FAS þar til ég þurfti að hætta vegna aldurs árið 2024. Ég sinnti þar starfi áfangastjóra og kerfisstjóra lengst af ásamt kennslu í stærðfræði og forritun.
Við Amalía eigum fimm börn á aldrinum 35-55, og af þeim er Elías Tjörvi yngstur. Þrjú fluttum við með okkur í Nesin, tvö fæddust hér, og þótt dæturnar þrjár búi nú í Reykjavík verða þær alltaf Nesjastelpur. Öll gengu þau í skóla hér og eru stúdentar frá FAS. Barnabörnin eru tíu og svo eigum við eitt barnabarnabarn.
Auk starfa minna í Nesjaskóla og FAS hef ég tekið þátt í ýmsu hér. Ég var einn af stofnendum Eystrahorns og fyrsti ritstjóri þess, sömuleiðis einn af stofnendum Eldsmiðsins og stjórnarformaður lengst af. Ég tók þátt í starfi Kríunnar á sínum tíma og sat sem fulltrúi hennar í umhverfisnefnd, bygginganefnd og hafnarstjórn. Ég hef tekið þátt í mörgum leiksýningum bæði með LH og Leikhópi Mána og svo í samstarfsverkefnum þeirra við FAS. Ég var í Lúðrasveit Hornafjarðar um árabil, fyrst sem trompet- og síðar sem saxófónleikari.
Á yfirstandandi kjörtímabili hef ég setið í stjórn hafnarinnar og er hreykinn af því hve vel okkur í hafnarstjórn hefur gengið að ýta á eftir vinnu við rannsóknir og undirbúning varanlegra endurbóta á innsiglingunni um Hornafjarðarós með varnargörðum og að tryggja fjármagn til mikilvægrar dýpkunar Grynnslanna næstu árin, enda er mikilvægi hafnarinnar augljóst öllum íbúum sveitarfélagsins.
Ég er frjálslyndur félagshyggjumaður, feministi og jafnréttissinni. Mér finnst að við sem fjölmenningarsamfélag eigum að vinna ötullega að því að bæta lífsgæði alls þess fjölbreytta fólks sem hér býr, hvaðan sem það kemur, með því að auka jöfnuð bæði til starfs og leiks og tryggja það að allir fái þá þjónustu og aðstöðu sem þeir þarfnast og þeim ber.
Ég vil stuðla að því að í sveitarfélaginu verði áfram unnið að því af kappi að fjölga búsetuúrræðum fyrir fólk á öllum aldri, bæði fjölskyldufólk og einstaklinga sem hér vilja setjast að, og einnig fyrir þá sem hér vilja búa um stundarsakir og leggja samfélaginu lið.
Þess vegna legg ég Kex-inu lið.

