Suðupottur menningar og fjölbreytileika
Elías Tjörvi Halldórsson skipar 3. sæti Kex Framboðs
Ég heiti Elías Tjörvi Halldórsson og verð 36 ára á árinu. Ég er fæddur og uppalinn í Nesjahverfi og hef búið þar meirihluta ævinnar fyrir utan nokkur ár í Reykjavík og núna síðustu ár þar sem ég hef búið á Höfn. Mér finnst hvergi betra að vera en í Nesjunum og þó að það hafi verið ágætt að búa í Reykjavík þá fannst mér alltaf óumflýjanlegt að ég myndi flytja aftur heim.
Ég hef unnið í veitingabransanum frá því ég var 16 ára, bæði hér í sveitarfélaginu og í Reykjavík. Í dag starfa ég sem kokkur á veitingahúsinu Heppu. Ég lauk stúdentsprófi frá FAS árið 2009 en fann mig aldrei almennilega í háskólanámi þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Ég fékk svo þá flugu í höfuðið fyrir stuttu að prófa eitthvað alveg nýtt og skráði mig í nám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri.
Líðandi kjörtímabil
Á kjörtímabilinu sem er að ljúka hef ég starfað sem fyrsti varamaður Kex í bæjarstjórn, varamaður og síðar varaformaður umhverfis- og skipulagsnefndar ásamt öðrum tilfallandi nefndarstörfum. Þau verkefni sem ég hef mest komið að eru skipulagsmál og má þar sérstaklega nefna vinnu við nýtt aðalskipulag sem tekur vonandi gildi í sumar. Þar er á ferð gríðarlega umfangsmikið og krefjandi verkefni sem hefur tekist að vinna í töluverðri sátt í bæjarstjórn og umhverfis- og skipulagsnefnd. Eðli málsins samkvæmt eru slík plögg aldrei fullkomin, en við höfum reynt eftir bestu getu að móta skipulagið að þörfum samfélagsins og reynt að spá fyrir um framtíðarþarfir eins og hægt er. Ég hef lært töluvert á þessari vinnu og er nokkuð ánægður með útkomuna og þakklátur fyrir það að hafa fengið tækifæri til þess að taka þátt í henni. Annað verkefni sem ég vil sérstaklega nefna, og er ánægður með að hafi náðst að vinna á kjörtímabilinu, er deiliskipulag fyrir Hagahverfi, nýju íbúðahverfi við Hafnarbraut. Þar er gert ráð fyrir fjölbreyttum íbúðum sem eiga að henta flestum fjölskyldugerðum. Hverfið verður byggt upp í áföngum og er gatnagerð fyrir fyrsta áfanga hafin og fer úthlutun lóða fram í kjölfarið.
Framtíðaráskoranir
Eitt stærsta úrlausnarefni næstu fjögurra ára er viðvarandi skortur í sveitarfélaginu á leiguhúsnæði. Ég þekki það af eigin reynslu hversu erfitt það getur reynst fólki að setjast hér að til lengri tíma. Hvort sem það eru brottfluttir sem vilja flytja aftur heim, nýjir íbúar sem sjá tækifæri í því að flytjast í sveitarfélagið eða farandverkafólk sem hefur búið í sveitarfélaginu í styttri tíma en hefur áttað sig á því, sem við sem búum hér þekkjum svo vel, að hvergi er betra að vera.
Það hefur verið töluvert byggt af íbúðarhúsnæði á undanförnum árum en sú uppbygging er að mestum hluta einbýlishús eða íbúðir fyrir vertíðarstarfsfólk í ferðaþjónustu. Eftirspurnin eftir leiguhúsnæði er miklu meiri en framboðið, fyrstur kemur fyrstur fær og leiguverðið í takt við það. Núverandi bæjarstjórn hefur tekið einhver skref í því að reyna að bæta úr vandanum, en þar má helst nefna áðurnefnt deiliskipulag Hagahverfis og samning við leigufélagið Bríeti sem tók yfir nokkrar íbúðir sem voru í eigu sveitarfélagsins og hefur skuldbundið sig til að byggja fleiri.
En betur má ef duga skal og finnst mér að ný bæjarstjórn verði að gera stórátak í uppbyggingu á óhagnaðardrifnu leiguhúsnæði samhliða hefðbundinni uppbyggingu.
Eftirspurnin eftir starfsfólki í árstíðabundinni ferðaþjónustu er alltaf að aukast en henni fylgja einnig töluvert af heilsársstörfum. Þar sem leiguhúsnæði á opnum markaði er af skornum skammti hafa mörg fyrirtæki leyst þann vanda með því að kaupa og/eða byggja íbúðir fyrir starfsfólk sitt. Það er frábær lausn fyrirtækjanna til skemmri tíma en ýtir ekki endilega undir það að fólk setjist hér að til framtíðar þegar íbúðarhúsnæði þess er tengt atvinnu þess.
Sveitarfélagið Hornafjörður er að mörgu leyti dásamlegur suðupottur menningar og fjölbreytileika og hefur alla burði til þess að gera enn betur. Við þurfum að reyna að stýra þeirri gríðarmiklu og mikilvægu uppbyggingu sem er að eiga sér stað í ferðaþjónustu þannig að hún ýti undir það og virki sem lyftistöng fyrir samfélagið í heild. Við höfum tækifæri til þess að gera búsetu í sveitarfélaginu enn ákjósanlegri, auka jöfnuð og taka á móti fleiri nýjum íbúum. Ekki bara þeim fáu sem hafa tök á því að byggja eða kaupa einbýlishús.
Af hverju Kex?
Ég skipa þriðja sæti á lista Kex framboðs í komandi sveitarstjórnarkosningum því mér er annt um samfélagið mitt og vil halda áfram að leggja mitt af mörkum til þess að gera það enn betra. Kex hefur unnið ötullega að því undanfarin ár að tala jákvætt um samfélagið, byggja ákvarðanir á rökum með skýra framtíðarsýn að leiðarljósi ásamt því að auka jöfnuð og jafnrétti í sveitarfélaginu. Kexið samanstendur af allskonar fólki með ólíkan bakgrunn sem hefur það sameiginlegt að hafa valið Sveitarfélagið Hornafjörð sem framtíðar heimili og vill sjá hag þess sem bestan. Sveitarfélagið er á góðri vegferð og ég vona að við fáum tækifæri til þess að halda áfram að vinna að betra og jákvæðara samfélagi fyrir öll.
Áfram Kex!

