Tökum einföld skref sem vega fyrir marga

Styrmir Einarsson situr í 6. sæti Kex Framboðs.

Styrmir Einarsson heiti ég og ég er búsettur í Svínafelli í Öræfum, ásamt unnustu minni og barni. Ég hef lengi starfað sem landvörður á mínu heimasvæði sem og annarsstaðar á landinu. Einnig hef ég unnið sem leiðsögumaður á jöklum í sveitafélaginu. En núna starfa ég fyrir fjölskyldufyrirtækið í Svínafelli sem snýr að gisti og veitingaþjónustu.

Störf mín og bakgrunnur tengjast mikið ferðamennsku og ég hef fengið að kynnast mörgum hliðum á þeim bransa. En sem Öræfingur, sem hefur séð gríðarlega uppbyggingu ferðaþjónustu og fjölgun ferðamanna undanfarin 15+ ár, hef ég myndað sterkar skoðanir á hvernig þessari auðlind (náttúrufegurð sveitafélagsins) ætti að vera nýtt í þágu íbúa. 

Ég hef einnig upplifað hvernig sveitin mín sem er strjálbýlasta og fámennasta sveit á Hornafirði hefur að ýmsu leyti gleymst eða verið aftarlega í áherslum sveitafélagsins. Ég veit að sveitin er aðlaðandi fyrir margan manninn en skortir innviði til að komast til móts við þá. 

Ég vil að rödd mín nýtist í þágu náttúru sveitarfélagsins og fyrir strjálbýlið sem oft skortir meiri umönnun. Þar er oft hægt að taka einföld skref sem vega mikið fyrir marga.

Next
Next

Eflum dreifbýlið og öryggi í samgöngum