Engar skyndilausnir, ábyrgð og skýr stefna.
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir skipar 2. sæti á lista Kex Framboðs
Ég býð mig fram á lista Kex Framboðs og skipa þar 2. sætið. Ég hef búið og starfað í sveitarfélaginu síðan 2018. Ég hef búið á Höfn síðan 2019 með sambýlismanni mínum Ágústi Elvarssyni og tveimur börnum þeim Máneyju Dröfn og Jökli Sæ.
Á síðasta kjörtímabili hef ég setið í bæjarstjórn fyrir Kex Framboð og verið varamaður í bæjarráði, fræðslu- og frístundanefnd og umhverfis- og skipulagsnefnd. Sú reynsla hefur kennt mér mikið, bæði um stjórnsýsluna og líka hvernig unnið er sem best saman til að ná góðum lausnum.
Ég starfa fyrir Náttúruverndarstofnun á þróunarsviði en áður fyrir Vatnajökulsþjóðgarð sem landvörður, yfirlandvörður og síðar á miðlægri skrifstofu á fræðslu- og mannauðssviði. Ég lauk háskólabrú frá Keili árið 2022 og stefni á frekara nám í haust.
Fyrstu fjögur árin í þessu starfi mótast mikið af þvi að læra á stjórnsýsluna og koma sér inní allskyns mál. Sú reynsla er dýrmæt og mun nýtast mér áfram. Það getur verið mikil áskorun að koma ný inná svið stjórnmála með litla sem enga reynslu en það hefur að mínu mati tekist vel til og samstarf milli allra flokka verið gott. Okkur í Kex fannst mikilvægt fyrir fjórum árum að ná sveitarfélaginu úr því neikvæða umtali sem var orðið mikið og var farið að taka á íbúa. Það hefur að mestu leyti tekist vel til að tala sveitarfélagið upp þó svo að neikvæð umræða sé óumflýjanleg. Ég vil halda áfram að byggja á þessum grunni, tala jákvætt um sveitarfélagið og það sem vel er hér gert. Við erum gríðarlega vel á okkur komin sem sveitarfélag og við verðum að halda áfram á þessari vegferð.
Mín helstu áherslumál eru einnig að halda áfram að byggja á þeim góða grunni sem kominn er að gera sveitarfélagið að aðlaðandi stað fyrir ungt fólk til að flytja hingað og stofna fjölskyldur. Ég vil halda áfram þeirri gríðarlega stóru og mikilvægu framkvæmd varðandi að byggja nýtt íþróttahús og stækka grunnskólann á Höfn. Þá framkvæmd verður að hugsa heildstætt með allt svæðið í huga og hugnast okkur í Kex ekki bútasaumur í framkvæmdum. Við viljum vinna verkin vel og ábyrgt. Ég vil einnig jafna tækifæri barna í sveitarfélaginu enn frekar og endurskoða frístundastyrkinn. Mikilvægt er að hann raunverulega auki þátttöku barna í tómstundum og virki betur sem jöfnunartól.
Ég vil einnig skoða hvaða áherslu og stefnu sveitarfélagið vill vera með í ferðaþjónustu. Við erum gríðarlega heppin með fjölbreytt og sterkt atvinnulíf sem byggist að mestu á einstaklingum og fyrirtækjum úr heimabyggð. Atvinnulífið byggist að stærstum hluta á ferðaþjónustu, sjávarútvegi og landbúnaði og myndi ég vilja leggja áherslu fyrst um sinn að sveitarfélagið móti sér skýra stefnu í málefnum ferðaþjónustu. Ég vil að fólk skapi sér atvinnu á sínum forsendum en það þarf að vera í takti við uppbyggingu innviða eins og vega, heilbrigðisþjónustu og skólaþjónustu. Hvert viljum við stefna í þessum málum er spurningu sem ég vil að svarað verði á næsta kjörtímabili. Hvenær er nóg, nóg af gistirýmum? Ef að markmiðið er að vera framúrskarandi í að taka á móti gestum sveitarfélagsins, hvernig náum við þá því markmiði?
Það er ekki sjálfgefið að vera kjörin í bæjarstjórn og það er ekki hlutverk sem ég hef tekið af léttúð. Þessu starfi fylgir mikil ábyrgð og ég hef verið samviskusöm að sinna því hlutverki og mætt vel á þá fundi sem ég er boðuð á og lagt mitt af mörkum í þágu samfélagsins. Þegar ég horfi til baka er ég stolt af þeim árangri sem hefur áunnist á yfirstandandi kjörtímabili og öllum þeim góðu og mikilvægu verkefnum sem hafa verið hrint í framkvæmd. Við munum fara betur yfir þau verkefni sem við lofuðum í málefnasamningi við Sjálfstæðisflokkinn á næstu vikum, en meirihluti af þeim loforðum sem sett eru þar fram höfum við efnt. Það gerist ekki sjálfkrafa heldur endurspeglar það gott samstarf.
Ég vona innilega að ég fái tækifæri til að starfa aftur fyrir ykkur kæru íbúar og nýta reynslu mína áfram.
Áfram Kex!

