Öflug hagsmunagæsla skiptir máli

Höfundur greinar er Eyrún Fríða Árnadóttir, oddviti Kex Framboðs og formaður bæjarráðs

Eitt af fjölmörgum verkefnum sveitarstjórnafólks er að gæta hagsmuna sveitarfélagsins og vera málsvari þeirra gagnvart ríkinu og öðrum hagsmunaaðilum. 

Á þessu kjörtímabili höfum við lagt mikla áherslu á það að koma sjónarmiðum sveitarfélagsins á framfæri og gæta hagmuna okkar. 

Þessi hagsmunagæsla er ekki alltaf mjög sýnileg, en hún birtist hinsvegar í þeim árangri sem við höfum náð á kjörtímabilinu. 

Hringtorg

Baráttan fyrir hringtorgi við nýja Fljótaveginn er gott dæmi um hvernig markviss hagsmunagæsla skilar raunverulegum árangri. Frá upphafi var ljóst að umferðarþungi og öryggisáskoranir á svæðinu kölluðu á aðrar lausnir en þær sem upphaflega voru lagðar til. Með þrautseigju og skýrum rökum um umferðaröryggi náðist að breyta forsendum verkefnisins. Niðurstaðan er öruggari og betri lausn fyrir íbúa og vegfarendur. Hringtorg sem eykur öryggi og þjónar samfélaginu okkar til framtíðar.

Ósinn er önnur lífæð samfélagsins okkar

Að tryggja fyrirsjáanleika í dýpkun á Grynnslunum hefur verið eitt stærsta hagsmunamál sveitarfélagsins. Í gegnum allt kjörtímabilið höfum við markvisst haldið málinu á lofti í samtölum við þingmenn og stjórnvöld, enda snertir það beint öryggi, rekstur hafnarinnar og afkomu atvinnulífsins. Nú hefur í fyrsta sinn náðst fram þriggja ára fyrirsjáanleiki í samgönguáætlun sem liggur fyrir Alþingi, eftir áralanga baráttu hafnarstjórnar og bæjarstjórnar. Sá árangur er ekki sjálfgefinn heldur afrakstur samstillts átaks og skýrra skilaboða um mikilvægi málsins fyrir samfélagið allt.

Heilsárs bráðaviðbragð í Öræfum

Bráðaviðbragð í Öræfum var löngu orðið brýnt hagsmunamál, en úrræðið hafði um árabil verið bundið við sumartímann þrátt fyrir að þörfin væri augljós allt árið um kring. Með markvissum samtölum við þingmenn kjördæmisins, heilbrigðisráðherra og Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur nú tekist að tryggja heilsárs bráðaviðbragð. Jafnframt hafa þessi samtöl opnað á raunhæfa möguleika á reglulegri heilbrigðisþjónustu í Öræfum, sem íbúar hafa kallað eftir um langt skeið. Þessi árangur skiptir sköpum – bæði fyrir íbúa og viðbragðsaðila, hvort sem er á Klaustri eða Höfn – þar sem fyrirsjáanleiki og aðgengi að þjónustu geta ráðið úrslitum þegar mest á reynir.

Nýja hjúkrunarheimilið

Að lokum vil ég nefna verkefnið um byggingu nýs hjúkrunarheimilis hér á Höfn. Þegar ný lög um að ríkið tæki yfir ábyrgð á uppbyggingu og rekstri hjúkrunarheimila tóku gildi 1. júní 2025 var verkefnið eitt af þremur á landsvísu sem féllu utan nýrrar ábyrgðar ríkisins. Með stöðugu, markvissu og ábyrgu samtali við ríkið tókst hins vegar að ná fram þeirri niðurstöðu að sveitarfélagið var leyst undan framtíðar fjárhagslegri ábyrgð á framkvæmdinni. Þar með losnar sveitarfélagið undan mikilli fjárhagslegri skuldbindingu, ekki undir hálfum milljarði. Það er líka ánægjulegt að sjá verktaka af svæðinu vinna þessa dagana á fullu í nýja hjúkrunarheimilinu sem verður tekið í notkun í sumar.

Hagsmunagæsla skiptir máli

Hagsmunagæsla er eitt mikilvægasta hlutverk sveitarstjórnarfólks og það getur skipt sköpum að rödd sveitarfélagsins heyrist skýrt. Margir af stærstu málaflokkum sem snerta innviði, þjónustu og daglegt líf íbúa eru á ábyrgð ríkisins og því þarf bæjarstjórn að vinna markvisst, af festu og ábyrgð, að því að gæta hagsmuna samfélagsins. Á þessu kjörtímabili höfum við byggt upp sterk og traust tengsl við ráðuneyti og stofnanir – og sá árangur sem náðst hefur sýnir að sú vinna skilar sér.

Við bjóðum okkur fram til áframhaldandi verka og öflugrar hagsmunagæslu fyrir sveitarfélagið. Setjum X við Kex 16. maí 2026.

Greinin birtist upphaflega í 3. tbl Eystrahorns 1. apríl 2026

Next
Next

Engar skyndilausnir, ábyrgð og skýr stefna.