Framtíð sveitarfélagsins er meira en Excel-skjal

Eyrún Fríða Árnadóttir

Bæjarfulltrúi Kex

Við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar vakna áleitnar spurningar um vinnubrögð meirihlutans, breyttar tekjuforsendur, aukna skuldsetningu og aðkomu kjörinna fulltrúa að mótun fjárhagslegrar framtíðarsýnar sveitarfélagsins.

Hér fyrir neðan má lesa ræðu Eyrúnar Fríðu Árnadóttur, bæjarfulltrúa Kex, sem flutt var við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins á bæjarstjórnarfundi þann 12. nóvember 2026.

Hægt er að horfa á ræðuna hér

Forseti og ágætu bæjarfulltrúar.

Fjárhagsáætlun er eitt mikilvægasta stjórntæki sveitarfélagsins. Hún á ekki einungis að endurspegla rekstur þess heldur einnig stefnu, áherslur og framtíðarsýn bæjarstjórnar til næstu ára.

Það er því leitt að hefja umræðuna á því að gera athugasemdir við vinnubrögðin og undirbúning við gerð þeirrar fjárhagsáætlunar sem hér er lögð fram til fyrri umræðu. 

Ég vil byrja á að ítreka að ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að hér er um að ræða fyrri umræðu, ekki við endanlega afgreiðslu á fullbúnni áætlun. Hinsvegar vakna upp ýmsar spurningar við þau gögn sem lögð eru hér fram og þá framtíðarsýn sem birtist í þeim, ásamt því að ég þarf því miður að gera athugasemdir við vinnubrögðin og samráðið í aðdragandanum.

Vinnufundur bæjarstjórnar vegna fjárhagsáætlunar var tvívegis felldur niður, en í síðara skiptið var sú ákvörðun dregin til baka. Á þeim fundi var einungis farið yfir efnahagsreikning sveitarfélagsins ásamt afar takmörkuðu yfirliti yfir mögulegar framkvæmdir næstu tíu ára.

Fjárhagsáætlunin var tekin til umfjöllunar í bæjarráði þann 10. nóvember án þess að drög að framkvæmdaáætlun næstu fjögurra ára lægi fyrir. Sú áætlun var ekki lögð fram fyrr en nú með fundarboði þessa fundar hér.

Enginn vinnufundur hefur farið fram þar sem bæjarfulltrúum hefur gefist kostur á að fara yfir framkvæmdaáætlunina, ræða forsendur hennar, forgangsröðun eða fjármögnun einstakra framkvæmda.

Í raun er það svo að fjárhagsáætlun hefur lítið verið rædd á vettvangi bæjarráðs en yfirferð á fjárhagsáætlun stofnanna og kynning á drögum á launaáætlun er það eina sem hefur komið inn á okkar borð þar. Samkvæmt verk og tímaáætluninni er þó gert ráð fyrir að bæjarráð og bæjarstjórn hafi aðkomu að tillögum að framkvæmdaáætlun, fái tillögur að álagningarreglum til umfjöllunar, komi að afgreiðslu fjárfestingarbeiðna stofnanna og afgreiði endanlega fjárhagsramma og launaáætlun.

Ég geri því verulegar athugasemdir við þessi vinnubrögð, ekki síst í ljósi umfangs þeirra fjárhagslegu skuldbindinga sem gert er ráð fyrir á næstu árum.

Eflaust hefði farið betur á því ef það hefði gefist tækifæri til þess að ræða þessar spurningar mínar áður en við komum hér á þennan fund, en mér er nauðugur einn kostur en að fara yfir þær hér. Þá vona ég innilega að þegar komið verði að seinni umræðu, þá hafi þeim verið svarað. 

Álagningarreglur og sjóðstreymi

Ef við lítum til þeirra breytinga á álagningarreglum sem meirihlutinn leggur hér til, þá sakna ég þess að hafa fengið tækifæri til þess að ræða útfærslu þeirra ásamt mati á fjárhagslegum áhrifum breytinganna. Vissulega eru gögnin komin fyrir þennan fund en þau lágu ekki fyrir á þriðjudag þegar málið var lagt fyrir bæjarráð.

Þrátt fyrir þau gögn eru enn spurningar sem ég velti fyrir mér.

Hver eru áætluð áhrif breytinganna á tekjur sveitarfélagsins á hverju ári út áætlunartímabilið? Hvaða áhrif hafa þær á sjóðstreymi sveitarfélagsins og þar með getu þess til að standa undir eigin fjárfestingum?

Þá óska ég eftir skýringum á þeirri lækkun sem verður á veltufé frá rekstri samkvæmt fyrirliggjandi fjárhagsáætlun. Að hvaða leyti má rekja þá lækkun til breytinga á tekjustofnum sveitarfélagsins og að hvaða leyti til annarra þátta í rekstrinum?

Ákvarðanir um lækkun álaga á íbúa og fyrirtæki verða ekki teknar í tómarúmi. Þær hafa áhrif á fjárhag sveitarfélagsins, getu þess til að veita þjónustu og svigrúm til framkvæmda.

Framkvæmdir og lántaka

Þegar kemur að framkvæmdum og fjármögnun þeirra vakna einnig ýmsar spurningar.

Hversu mikið fjármagn hefur sveitarfélagið til ráðstöfunar í framkvæmdir á hverju ári án þess að ráðast þurfi í lántöku?

Miðað við fyrirliggjandi gögn sýnist mér að framkvæmdageta sveitarfélagsins án lántöku nemi um 500 milljónum króna á ári, eða um tveimur milljörðum króna á fjögurra ára tímabili. Samhliða því er gert ráð fyrir lántöku upp á rúma fjóra milljarða króna á kjörtímabilinu.

Hvernig samræmist þessi fyrirhugaða lántaka þeirri framkvæmdaáætlun sem nú hefur verið lögð fram? Hvaða framkvæmdir standa að baki lántökunni og hversu stór hluti þeirra verður fjármagnaður með eigin fjármunum sveitarfélagsins?

Hefur verið lagt mat á hvernig fjármögnunarþörf sveitarfélagsins breytist vegna fyrirhugaðrar lækkunar á álögum og niðurfellinga á gjöldum og þar með tekjum stofnanna? Verður farið í  hagræðingaraðgerðir til þess að mæta þeim lækkunum eða verður þeim mætt með lántöku eða niðurskurði í öðrum stofnunum?

Það hlýtur að teljast grundvallaratriði að áður en lagðar eru fram tillögur um lántöku af þessari stærðargráðu hafi bæjarfulltrúum gefist kostur á að ræða þær framkvæmdir sem standa að baki henni og fjárhagslegar forsendur þeirra.

Þróun skuldahlutfalls og vaxtabyrði

Það sem vekur ekki síður athygli þegar fyrirliggjandi fjárhagsáætlun er skoðuð er þróun skuldahlutfalls sveitarfélagsins.

Samkvæmt síðustu fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að skuldahlutfall sveitarfélagsins yrði um 80% árið 2029. Nú er hins vegar gert ráð fyrir að skuldahlutfallið verði komið í 101% á sama tíma.

Þetta er umtalsverð breyting á fjárhagslegum forsendum sveitarfélagsins, ekki síst í ljósi þess að núverandi skuldahlutfall er um 58%.

Ég sakna þess að fram hafi farið efnisleg umræða innan bæjarstjórnar um þessa þróun, hvað skýrir hana og hvaða áhrif hún mun hafa á fjárhagslegt svigrúm sveitarfélagsins til framtíðar.

Þá kalla ég eftir upplýsingum um áætlaða vaxtabyrði sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðrar lántöku. Hvaða vaxtakjör eru lögð til grundvallar áætluninni? Hversu mikið mun fjármagnskostnaður sveitarfélagsins aukast á tímabilinu og hvaða áhrif mun það hafa á rekstur þess til lengri tíma?

Það er ekki nóg að horfa eingöngu til þeirrar fjárhæðar sem fyrirhugað er að taka að láni. Við þurfum einnig að horfa til þess hvað það kostar sveitarfélagið að bera þessar skuldir til framtíðar.

Mat á fjárhagsgetu sveitarfélagsins

Í ljósi þeirra breyttu fjárhagslegu forsenda sem hér eru lagðar fram vil ég einnig spyrja hvort fyrirhugað sé að endurnýja mat á fjárhagsgetu sveitarfélagsins.

Ég minni í því samhengi á 66. gr. sveitarstjórnarlaga, þar sem kveðið er á um skyldu sveitarfélaga til að láta fara fram sérstakt mat á fjárhagslegum áhrifum fjárfestinga, framkvæmda og annarra skuldbindinga sem fara yfir tiltekin viðmið.

Hefur verið lagt mat á það hvaða fyrirhuguðu framkvæmdir og skuldbindingar falla undir ákvæðið? Verður fjárhagslegt mat vegna stærri framkvæmda endurskoðað með hliðsjón af breyttum tekjuforsendum, lækkun veltufjár frá rekstri og aukinni skuldsetningu sveitarfélagsins?

Að lokum

Gagnrýni mín hér og spurningar snúast ekki um að sveitarfélagið eigi aldrei að taka lán eða að það eigi ekki að lækka álögur á íbúa.

Hún snýst um að þær ákvarðanir sem við tökum verði að byggja á skýrum forsendum og að við sem kjörnir fulltrúar fáum raunhæft tækifæri til að leggja mat á þær og afleiðingar þeirra. Hér eru lagðar fram tillögur um breytingar á tekjustofnum sveitarfélagsins, lækkun veltufjár frá rekstri, verulega lántöku og umtalsverða hækkun skuldahlutfalls. Þrátt fyrir umfang þessara breytinga hefur ekki farið fram heildstæð umræða meðal bæjarfulltrúa um samspil þessara þátta og þá fjárhagslegu stefnu sem hér er mörkuð til næstu fjögurra ára.

Það er fullkomlega eðlilegt að deila um forsendur framkvæmdaáætlana, kostnað, tímasetningar og forgangsröðun. Það er einmitt hluti af hlutverki okkar sem kjörinna fulltrúa.

En til þess að geta átt þá umræðu þurfa allir bæjarfulltrúar að fá tækifæri til að kynna sér áætlanirnar, ræða þær og leggja mat á þær. Framtíðarsýn sveitarfélagsins á ekki að birtast bæjarfulltrúum í formi Excel-skjals til afgreiðslu.

Hún á að vera viðfangsefni raunverulegrar umræðu og stefnumótunar innan bæjarstjórnar.

Next
Next

Best að eldast í Hornafirði