Fjögur ár af uppbyggingu - næstu skref Kex Framboðs

Eyrún Fríða Árnadóttir og Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúar fyrir Kex framboð

Árið 2022 var Kex Framboð stofnað og bauð fram í fyrsta sinn í sveitarstjórnarkosningum í Sveitarfélaginu Hornafirði. 

Kjörtímabilið hefur gengið vel og samstarf við hina flokkana sem og starfsfólk sveitarfélagsins hefur verið farsælt. Það hefur margt áunnist á síðustu 3 ½ ári og erum við ánægð með þau verkefni sem við höfum náð að koma á laggirnar þó að auðvitað sé það þannig að maður nái aldrei að gera allt. 

Samfélagið í fyrsta sæti - uppbygging og umbætur

Við höfum unnið að fjölbreyttum verkefnum, m.a.:

  • Endurskoðun samninga við nánast öll félagasamtök

  • Uppbyggingu leikvalla og vinnu við heildstæða leikvallaáætlun

  • Bættri aðstöðu í félagsheimilum

  • Stækkun leikskólans Sjónarhóls

  • Umbótum í sorphirðu og málaflokknum í heild

  • Aukin fjárveiting í viðhald eigna sveitarfélagsins

  • Fullklárað Sindrabæ (nema hljóðkerfi sem er á leiðinni)

  • Sterk samskipti við atvinnulíf og Vatnajökulsþjóðgarð

  • Sérstaka áherslu á þátttöku og aðkomu ungs fólks

  • Viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag – fjórða sveitarfélagið á landinu til að hljóta þann titil

  • Endurskoðun á innri starfsemi og skipuriti sveitarfélagsins til að styrkja þjónustu og bæta starfsaðstæður starfsfólks

Við erum einnig stolt af virkri hagsmunabaráttu gagnvart ríki og stofnunum. Þar má nefna hringtorgið, framlenging bráðaviðbragðs í Öræfum yfir veturinnð, og öflugt samstarf við FSRE um uppbyggingu hjúkrunarheimilis. Þá höfum við átt gott samstarf við þingmenn og aðra kjörna fulltrúa sem hafa reynst okkur mikil aðstoð í hinum ýmsu málum.

Við höfum lagt okkur fram við að sinna öllum þeim ólíku hópum sem saman mynda okkar sveitarfélag. Börnum, eldri borgurum, erlendum íbúum, íbúum í dreifbýli og þéttbýli. 

Við erum stolt af okkar fjárhagsáætlun sem við afgreiddum nú fram í fjórða sinn. Í henni má sjá þær áherslur sem við höfum unnið með á þessu kjörtímabili. Metnaðarfull framkvæmdaáætlun sem endurspeglar okkar áherslur vel þar sem unnið er af krafti að innviðum um sveitarfélagið allt


Hugsum stórt - byggjum til framtíðar

Þó að metnaðarfullar framkvæmdaáætlanir liggi fyrir er ljóst að ekki verður allt unnið á einu kjörtímabili. Sumar framkvæmdir þurfa lengri undirbúning, aðrar hafa tafist af ýmsum ástæðum.

Við hefðum viljað að íþróttahúsið væri komið lengra en hinsvegar hefur öll sú vinna verið til góðs og mun leiða til þess að allir kostir hafa verið fullkannaðir þegar framkvæmdin loksins hefst. Þá hafa einnig komið upp áhyggjur af stöðu húsnæðis Grunnskóla Hornafjarðar sem við höfum nú samþætt framkvæmdaplani varðandi íþróttamannvirki á miðsvæðinu. Oft var þörf en nú er nauðsyn, að koma börnunum okkar í framtíðar aðstöðu til náms og leiks sem hugsuð er með heildstæðum hætti til lengri tíma.


Framundan hjá Kex - næstu skref í málefnavinnu

Við erum full eldmóði að halda áfram og vinna fyrir sveitarfélagið með hag þess alls fyrir brjósti. Næstu mánuðir verða því þéttir fram að kosningum með málefnavinnu og fjölbreyttum viðburðum. 

Okkur finnst mikilvægt að fólk sjái sig og samfélagið sitt í stefnuskrá flokksins og þess vegna viljum við fá sem flesta að borðinu þegar við förum af stað í málefnavinnu.

Í janúar munum við boða til fyrsta málefnafundar og við hvetjum ykkur öll til að hafa samband, senda okkur ábendingar og taka þátt í að móta samfélagið okkar saman til framtíðar. 


Okkar bestu jóla- og nýárskveðjur,

Eyrún Fríða Árnadóttir, formaður bæjarráðs

Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir, bæjarfulltrúi


Hvar er hægt að nálgast Kex?

kexframbod@gmail.com

Previous
Previous

Viltu hafa áhrif?

Next
Next

Nýtt íþróttahús á Höfn - hugsum til framtíðar