Hefur þig dreymt um að labba Kex með Kex og fá þér kex? Tíminn er núna! Okkar eina sanna Helga ætlar að leiða gönguna.
Við hittumst á kosningaskrifstofu Kex í Hepputorgi klukkan 10:00 og keyrum á eigin bílum að Syðri-Firði.
Hvenær: 2. maí
Klukkan: 10:00
Lengd: 6 km
Heildartími göngu: 2,5-3 klst
Erfiðleikastig: 1 skór
Hittumst á kosningaskrifstofunni!
Á vef Árnastofnunar segir: “Kex er grunnt skarð í fjallinu fyrir austan og ofan Horn í A-Skaftafellssýslu og er farið um það í Lónið, alfaraleið milli Papóss og Horns. Fyrst er Papós, þar sem var kaupstaðurinn, þá Kastárdalur, þá Grænhjalli fremst á dalnum ytra megin, svo Kexbotn og úr honum Kexlækur. Þar er einnig Kexishamar”
Upplýsingar um gönguna: Gangan er alls um 6 km löng (Frá gamla bæjarstæðinu við Papós, upp í skarðið Kex og til baka). Hækkun er um 350 m (til samanburðar þá er hækkunin í Almannaskarði, frá bílastæði Hafnarmegin og upp um 150m). Það má alveg áætla 2,5-3 klst í heildina í gönguna. Það eru einhverjar kindagötur á leiðinni sem hægt er að fylgja en annars fetum við okkur bara góða leið upp í skarðið.
Erfiðleikastig: 1 skór
--------
Have you dreamt of doing the hike up Kex with Kex? The time is now! Our one and only Helga will lead the hike.
Our meeting point is Kex's electoral office at Hepputorg at 10:00. We will drive from there (on our own vehicles) to Syðri-Fjörður.
Date: May 2
Time: 10:00
Length: 6 km
Duration of hike: 2,5-3 hours
Difficulty level: 1
Meeting point: Kex's electoral office

